Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra segir Halldór Ásgrímsson, fráfarandi forsætisráðherra, hafa rætt um að axla ábyrgð eftir sveitastjórnarkosningarnar. Nokkur hópur samstarfsmanna Halldórs hafi sagt honum að Halldór myndi aldrei standa upp úr stóli formanns fyrir honum en vildi ná samstöðu með honum um að kjósa nýja forystu fyrir Framsóknarflokkinn. Halldór hafi þó ekki kynnt þá niðurstöðu í gær á Þingvöllum. Meira
Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, sagði í samtali við Morgunblaðið, aðspurður hvort breytinga væri að vænta hjá forystu Framsóknarflokksins, að hann myndi fara yfir stöðu sína á miðstjórnarfundi flokksins nk. föstudag. Meira
Vorfundur miðstjórnar Framsóknarflokksins hefst kl. 17 í dag í Egilshöll í Reykjavík. Þar mun Halldór Ásgrímsson, formaður flokksins, flytja yfirlitsræðu og Siv Friðleifsdóttir, ritari flokksins, fjalla um væntanlegar sveitarstjórnakosningar. Síðan verða almennar umræður en fundurinn er haldinn vegna komandi kosninga. Meira
Miðstjórnarfundur Sambands ungra framsóknarmanna (SUF) haldinn á Akureyri, sem fram fór 17. október 2004, fagnar fyrirhuguðum skattalækkunum ríkisstjórnarinnar, að því er fram kemur í ályktun vegna fundarins. Meira
Miðstjórn Framsóknarflokksins kemur saman á fundi í dag og á morgun á Hótel Loftleiðum í Reykjavík. Miðstjórnarfundur hefst með setningu formanns og kosningu embættismanna, en síðan mun Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, ræða stjórnmálaviðhorfið og stöðu mála í upphafi kosningavetrar. Meira
Tillaga Halldórs Ásgrímssonar, formanns Framsóknarflokksins, um hóflegt veiðileyfagjald í stjórnun fiskveiða var samþykkt samhljóða á miðstjórnarfundi flokksins í Hafnarfirði í dag. Þá voru málefni Ríkisútvarpsins einnig til umræðu á miðstjórnarfundinum. Meira